Viðhafnarútgáfa Njálu
Ný og glæsileg útgáfa Brennu-Njáls sögu kemur úr prentvélunum um miðjan nóvember nk. Stuðst er við annálaðan textafrágang og skýringar Jóns Böðvarssonar sem fyrst var gefinn út fyrir tæpum fimmtíu árum. Að þessu sinni er bókin skreytt yfir 50 teikningum Þórhildar Jónsdóttur. Hátt í eitt þúsund manns keyptu bókina í forsölu á sérstökum vildarkjörum og skráðu nafn sitt á síður hennar um leið og þeir árnuðu Njálufélaginu heilla. Enda þótt nafnalistanum hafi verið lokað þegar bókin fór í prentun mun hún bjóðast áfram á sama tilboðsverði hér á vefsíðu okkar; 11.990 krónur að viðbættu heimsendingargjaldi. Áætlað smásöluverð í bókabúðum er um 15.000 krónur.
„Ber er hver að baki …
… nema sér bróður eigi“ eru fleig orð Kára Sölmundarsonar í Brennu-Njáls sögu. Njálufélagið er þar engin undantekning. Styrkur þess til fjölmargra brýnna verkefna felst í fjölda félagsmanna og fjárhagslegra bakhjarla. Margar hendur vinna létt verk. Þess vegna skiptir þátttaka þín í Njálufélaginu miklu máli.
Formáli
Formáli Guðna Ágústssonar í nýrri útgáfu Njálu sem væntanleg er á markað í nóvember:
„Ber er hver að baki nema sér bróður eigi ...“ mælti Kári Sölmundarson, líklegast reyndar í hálfkæringi, eftir að hafa varist hraustlega stórum hópi brennumanna sem að honum sótti úr öllum áttum. Björn hvíti í Mörk hlífði honum, en e.t.v. ekki síður sjálfum sér, að baki og saman fóru þeir að lokum með frækinn sigur af hólmi. Þjóðin henti þessa tvíræðu speki Kára á lofti og ekki síður hin spakvitru orð tengdaföður hans, lögspekingsins Njáls Þorgeirssonar á Bergþórshvoli, um að með lögum skyldi land vort byggja, en með ólögum eyða. Tilsvörin um þjófsaugun, kinnhestinn, hlíðina fögru, hornkerlingu, kartnögl og ótal fleiri kjarnyrði hafa gert þetta einstaka verk ódauðlegt í íslenskri þjóðarsál.